Skilmálar þjónustu

1. Um seljanda

Seljandi er Umboðssalan Art ehf, kt. 660695-2309, VSK nr. 47352, með heimilisfang að Larsenstræti 2, 800 Selfoss. Hægt er að hafa samband við fyrirtækið með tölvupósti á dorotheah@simnet.is. Tilkynningar um að fallið sé frá samningi, beiðnir um vöruskil og skil á vörum skulu sendast á ÁLNÓ - Larsenstræti 2, 800 Selfoss, eða á dorotheah@simnet.is. Hægt er að nálgast eyðublað vegna afturköllunnar með því að smella hér.

2. Verð, gjöld og pöntun

Öll verð í netverslun ÁLNÓ eru birt í íslenskum krónum og með virðisaukaskatti. Sendingarkostnaður og annar viðbótarkostnaður skulu koma skýrt fram áður en kaupandi gengur frá pöntun. Greiðsla fer aðeins fram með skýru samþykki kaupanda, og með því að staðfesta pöntun staðfestir kaupandi að um greiðsluskyld kaup sé að ræða. Umboðssalan Art ehf staðfestir móttöku pöntunar rafrænt án tafar og viðskiptaskilmálar skulu vera aðgengilegir með þeim hætti að kaupandi geti varðveitt þá og kallað þá fram síðar.

3. Afhending

Afhendingarmáti og áætlaður afhendingartími er 2-3 dagar frá því að pöntun er gerð. Verði tafir á afhendingu mun Umboðssalan Art ehf. upplýsa kaupanda án ástæðulausrar tafar um tafirnar og áhrif þeirra á afhendingu.

Hægt er að sækja vöruna í verslunina ÁLNÓ, Selfossi.

4. Réttur neytanda til að falla frá samningi

Kaupandi sem telst neytandi samkvæmt lögum hefur almennt rétt til að falla frá fjarsölusamningi innan 14 daga frá þeim degi sem hann, eða aðili sem hann tilnefnir, tekur vöruna í sína vörslu. Ef um er að ræða margar vörur í sömu pöntun sem afhentar eru sitt í hvoru lagi, vörur í fleiri en einni sendingu eða reglulega afhendingu vöru, reiknast fresturinn samkvæmt þeim reglum sem leiða af lögum nr. 16/2016. Til að nýta réttinn þarf kaupandi að senda Umboðssalan Art ehf ótvíræða tilkynningu, t.d. með tölvupósti á dorotheah@simnet.is eða bréfi á skilafangið að Larsenstræti 2, 800 Selfoss, áður en fresturinn rennur út.

Umboðssalan Art ehf gerir kaupanda aðgengilegt eyðublað vegna afturköllunar, en kaupanda er ekki skylt að nota það eyðublað svo lengi sem tilkynningin er skýr og ótvíræð. Hafi Umboðssalan Art ehf ekki veitt kaupanda lögboðnar upplýsingar um réttinn til að falla frá samningi getur afturköllunarfresturinn lengst um allt að 12 mánuði. Hægt er að nálgast eyðublað vegna afturköllunnar með því að smella hér.

5. Undantekningar frá rétti til að falla frá samningi

Réttur til að falla frá samningi gildir ekki í þeim tilvikum sem lög mæla sérstaklega fyrir um, þar á meðal eftir atvikum um sérframleidda eða sérsniðna vöru, vöru sem líklegt er að rýrni eða úreldist fljótt, innsiglaðar hreinlætis- eða heilsuvörur ef innsigli hefur verið rofið, og tiltekið stafrænt efni eða þjónustu þegar skilyrði laga fyrir undanþágu eru uppfyllt. Þessi undanþága gildir aðeins að því marki sem við á um viðkomandi vöru eða þjónustu.

6. Skil, endursending og endurgreiðsla

Nýti kaupandi rétt sinn til að falla frá samningi skal hann senda vöruna til baka án ástæðulausrar tafar og eigi síðar en 14 dögum frá því að tilkynning um afturköllun var send. Fresturinn telst virtur ef varan er send af stað innan frestsins. Kaupandi greiðir kostnað vegna endursendingar, nema um galla sé að ræða eða annað sé sérstaklega tekið fram. Kaupandi má aðeins meðhöndla vöruna að því marki sem nauðsynlegt er til að sannreyna eðli hennar, eiginleika og virkni; fari meðferðin út fyrir það kann kaupandi að bera ábyrgð á verðrýrnun vörunnar.

Umboðssalan Art ehf endurgreiðir kaupanda allar greiðslur sem hann hefur innt af hendi vegna þeirra vara sem afturköllunin tekur til, þar með talið kostnað vegna ódýrasta staðlaða afhendingarmátans sem boðinn var, án ástæðulausrar tafar og eigi síðar en 14 dögum frá því að Umboðssalan Art ehf barst tilkynning um að fallið væri frá samningi. Endurgreiðsla fer fram með sama greiðslumiðli og kaupandi notaði í upphaflegu viðskiptunum nema annað sé sérstaklega samið um. Umboðssölunni Art ehf er þó heimilt að halda endurgreiðslu eftir þar til varan hefur borist aftur eða þar til kaupandi hefur sýnt fram á að hún hafi verið send til baka, hvort heldur gerist fyrr. Endurgreiðsla fer fram í peningum en ekki sem inneign nema kaupandi samþykki það sérstaklega.

Til að forðast misskilning er tekið fram að lögbundinn réttur til að falla frá samningi við netkaup er ekki sami hlutur og frjáls skilaréttur. Umboðssalan Art ehf veitir ekki sérstakan frjálsan skilarétt á ógallaðri vöru umfram það sem leiðir af lögum, nema slíkt sé sérstaklega auglýst hverju sinni.

7. Gallaðar vörur og kvartanir

Reynist vara gölluð gilda um kaupin lög nr. 48/2003 um neytendakaup. Kaupandi skal tilkynna Umboðssalan Art ehf um galla án ástæðulausrar tafar eftir að gallans verður vart eða mátti verða vart. Frestur til að leggja fram kvörtun er aldrei styttri en tveir mánuðir frá því að kaupandi varð gallans var. Almennt þarf að leggja fram kvörtun innan tveggja ára frá afhendingu, en fresturinn getur verið fimm ár ef varan er ætluð til verulega lengri endingar en almennt gerist.

Við réttmæta gallakvörtun getur kaupandi, eftir atvikum, átt rétt á úrbótum, nýrri afhendingu, afslætti, riftun eða skaðabótum samkvæmt lögum. Úrbætur eða ný afhending skulu fara fram án kostnaðar og verulegs óhagræðis fyrir kaupanda. Ef um réttmæta gallakvörtun er að ræða ber Umboðssalan Art ehf kostnað af endursendingu og öðrum kostnaði sem leiðir af lögmætum úrbótum eða nýrri afhendingu. Ef skoðun leiðir hins vegar í ljós að ekki var um galla að ræða getur Umboðssalan Art ehf eftir atvikum innheimt eðlilegan kostnað vegna nauðsynlegrar athugunar, að því tilskildu að kaupanda hafi verið gerð grein fyrir því fyrirfram.

Kvartanir vegna galla eða annarra athugasemda við viðskipti skulu sendar á dorotheah@simnet.is. Gott er að kaupandi tilgreini pöntunarnúmer, lýsingu á galla og, ef við á, myndir af vörunni eða umbúðum.

8. Ágreiningur og úrlausn

Umboðssalan Art ehf leggur áherslu á að leysa úr kvörtunum og ágreiningi með skjótum og sanngjörnum hætti. Takist ekki að leysa mál með samkomulagi getur neytandi, eftir því sem við á, leitað til Kærunefndar vöru- og þjónustukaupa, sem er sjálfstæð og óháð opinber nefnd á sviði neytendamála.